Já gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn oh yndislegt að það sé að koma sumar. Ég held barasta að þetta verði hið frábærasta sumar. Við Elli fáum full sumarfrí sem er bara í fyrsta skiptið í mörg ár og við ætlum sko að njóta þess með molunum okkar. Stefnan er bara að vera saman og hafa gaman af. Ætlum að ferðast eitthvað en bara innan einhvers radíus því það þarf að vera í kreppustílnum en ekki hvað. Svo mikið hægt að gera þó svo það sé ekki langt farið. Við ætlum líka bara að vera mikið heima og njóta þess að vera heima hjá okkur og þess sem við getum gert enda pallurinn frábær og hægt að busla og vera í sólbaði því sólin ætlar að vera á Skaganum í sumar hún er búin að lofa mér því;)
Svona af því að sumarið er að byrja og við eigum svo dugleg börn að þá er tilvalið að segja hvað þau eru frábær. Byrjum á Brynjari. Elsku besta skólastráknum okkar. Honum gengur vel í skólanum og er að læra margföldunartöfluna utan að og er ofsalega duglegur að lesa og skrifa og bara allt. Núna er hann svo duglegur að læra heima þegar hann er búinn í skólanum áður en hann leikur sér oh yndislegt. Hann er á fullu í fótboltanum og svo duglegur og fer mikið fram. Hann vill nú líka fara að prufa aðrar íþróttir svo það er um að gera að fara prufa, hver veit nema hann kíki í golfið í sumar og svo badmintonið. María er að fara útskrifast úr leikskóla svo það er bara fyrsta útskrift á næsta leyti eða í maí, það verður alveg ofboðslega gaman:) Svo hún fer í skóla í haust þessi elska. Hún þarf nú líka að drífa sig að öllu svo hún er nú farin að lesa og heldur að hún geti lesið og gert allt það sama og Brynjar en við reynum nú aðeins að halda að henni heheh. Hún er búin að vera í íþróttaskólanum og sundi í allann vetur og er ofsalega dugleg. Síðan ætlar hún í fimleikana næsta vetur og auðvitað sundið svo það verður fínt. Spurning hvort hún fari prufa badmintonið líka aldrei að vita. Máni Berg litla barnið mitt gerir ekkert annað en að stækka og þroskast og er alveg æðislegur. Hef svo gaman að honum hvað hann er duglegur, hermir eftir systkinum sínum og er mjög ákveðinn. Hann verður 3ja ára í sumar og verður í leikskólanum áfram, svo það verður bara eitt barn á leikskóla vá hvað tíminn líður púff.... Hann byrjaði í íþróttaskólanum eftir áramót og elskar það. Er svo duglegur og verður áfram í íþróttaskólanum næsta haust ekki spurning svo við höldum áfram að fara á fætur snemma á laugardögum enda eru þetta bestu tímarnir með krökkunum.
Okkur líður mjög vel á Víðigrundinni alveg yndilegt. Krakkarnir hafa fullt af vinum í hverfinu og það verður æðislegt í sumar þegar þau verða bara úti og inni og bara þar sem þau vilja vera. Trampólínið fór upp sumardaginn fyrsta sem vakti mikla lukku hjá öllum. Máni getur bara verið úti og vill ekki koma inn alveg sama hvernig veðrið er.
Æj þetta var smá línur eins og alltaf en ég er að fara vinda mér í myndirnar þar sem ég er í svona myndastuði, að skoða gamlar myndir og rifja upp skemmtilegan tíma. Svo gaman að sjá hvað maður er ríkur og hvað maður hefur gert mikið í gegnum tíðina. Líka að vita til þess hvað maður á mikið eftir að gera...júhú.
26. apríl 2010 klukkan 15:22
Brynja Kolbrún Pétursdóttir Engin athugasemd
Vá frekar langt síðan ég hef eitthvað verið að blogga hérna samt nú frá miklu að segja en ég bara var núna að hugsa um tímann og langaði endilega að setja smá niður á blað. Er í vinnunni að vinna að greiðsluáætlun en ekki hvað! sem er bara skemmtilegt og þarfnast lagni og greiningarvinnu bara gott mál. Svo ég sit í horninu mínu og hlusta á hana elskulegu Duffy alveg ótrúlegt hvað ég get endalaust hlustað á sömu tónlistina bara fæ ekki nóg. Þetta róar mann niður að vera að hlusta svona og hamast í Excel svo ég fór aðeins að hugsa um tímann okkar í Danmörku hvað ég sakna hans mjög oft og þá er ég að tala um OKKAR tíma þar ekkert endilega að fara þangað núna. Þá fór ég að leiða hugann að tímanum hvað hann er eitthvað einstakur. Öll fæðumst við, eldumst og þroskumst sem er bara gott mál en mér finnst eitthvað svo erfitt að sjá hvað hann líður alveg ótrúlega hratt. Kannski finnst okkur það ekki svona "venjulega". við náttúrulega bara förum að sofa á kvöldin, vöknum komum börnum í leikskóla og skóla, förum sjálf í okkar vinnu, bíðum eftir að komast heim aftur. Þá tekur við tiltekt, matseld, lestur og fleira sem fylgir að hafa börn (sumir hafa ekki börn). Horfum kannski smá á sjónvarp eða ekki og förum svo í rúmið aftur. Af hverju er ég að hugsa um tímann núna nú kannski vegna þess að ég er flutt aftur á Akranes þar sem ég ólst upp sem krakki og mér finnst bara ekki svo langt síðan. Enda vekur upp margar minningar þar sem við erum núna. Brynjar er í gamla skólanum og er svo duglegur að fara á fótboltaæfingar. Svo ég hugsa oft til þess þegar ég var í skólanum líka og maður var að labba heim til sín, fara á æfingar og þess háttar. Ótrúlegt hvað lífið endurtekur sig, ætli maður verði ekki að hugsa þannig? bara veit ekki. Áður var maður barn og þurfti hjálp við svo margt nú á maður börn og bara horfir á þau vaxa. Ég er farin að sjá hvað myndir eru rosalega mikilvægar á hvert heimili þar sér maður hvað börnin eldast púff segi ég nú bara. Litlu rækjurnar orðnar að persónum og mjög sterkum persónum. Svo það er aldrei ofsagt að maður á að njóta hverrar mínútu sem maður getur í öllu sem maður tekur sér fyrir hendur og reyna að staldra aðeins við og horfa yfir sjóndeildarhringinn og sjá bara VÁ þetta hef ég gert eða við já við öll held ég bara. Við megum bara vera svo þakklát fyrir að vera til og hafa allt þetta sem við höfum ekki spurning og ég geri það;)
Já þetta var hugleiðing dagsins. Annars allt gott af fjölskyldunni að frétta. Búin að flytja í yndislegt hús við Víðigrundina oh já hometown er sko með réttu. Brynjar rosalega duglegur í skólanum, fótboltanum og bara öllu sem hann gerir. María frábær í leikskólanum og það styttist í skólagelluna, hún syndir líka eins og selur og sprikklar í íþróttaskólanum. Máni stórglæsilegur í leikskólanum líka og sprikklar í íþróttaskólanum. Hann er alltaf að verða meira og meira ákveðinn og er yndislegur strákur. Þau eru náttúrulega öll alveg frábærir einstaklingar og eiga eftir að gera eitthvað stórkostlegt út úr lífinu sínu. Stóri bróðir þeirra býr hjá okkur núna og það er voðalega spennandi finnst þeim enda skemmtileg tilbreyting hjá okkur. Við hjónakornin erum ofsalega dugleg að vinna og vinnum af okkur rassgatið sem nú kannski ekki alveg ofsalega gott mál en við verðum að fara hægja á okkur og aðeins huga að okkur sjálfum. við erum viss um það að við eigum eftir að gera það og munum gera það með stæl því við eigum það svo skilið bæði tvö.
Læt þetta duga í bili hver veit nema maður hendi inn færslu aftur vei spennandi.....
04. mars 2010 klukkan 15:18
Brynja Kolbrún Pétursdóttir 1 athugasemd
Eftir langt bloggstopp þá verð ég að koma með eina færslu svona í tilefni þess að það er komið nýtt ár og ekki nóg með það að það sé komið nýtt ár þá er kominn nýr tugur í ártalið okkar. 2010 er mjög flott ártal og ég efast nú ekki um það að þetta verði gott ár held ég að þetta verði hið frábærasta ár en ekki hvað. Við fjölskyldan að Dalsflöt 11 horfum björtum augum inn í nýja árið og sjáum mörg tækifæri leynast allt næsta ár. Ég ætla í fyrsta skiptið að setjast niður við tölvuna og skrifa nokkur markmið fyrir árið 2010 bara svona til að sjá hvort maður reyni ekki að bæta sig og vera yndislegur enda er það það sem gefur okkur gildi og lífshamingju. Ég held nú að mesta markmiðið er að reyna að vera eins mikið saman og við getum og ekki steypa okkur í of mikla vinnu því við erum týpísk í að gera það en það kemur nú bara allt saman í ljós hvernig þetta verður. Mig langar nú soldið að fara yfir árið 2009 í grófum dráttum þar sem mín var ekkert ofsalega dugleg að blogga þetta árið miðað við hin tvö enda bjuggum við í Danmörku þá og þá var maður að segja fréttir af fjölskyldunni. En mig minnir að árið hafi farið rólega af stað og vorum við að ströglast bara. Okkur fannst erfitt að búa á Íslandi enda söknuðum við DK mikið en allt tekur þetta bara tíma og erum við búin að koma okkur vel fyrir á Íslandinu góða. Það sem stendur uppúr árið 2009 klárlega er giftingin okkar oh það var yndislegur dagur sem var fullkominn í alla staði oh love it! Væri alveg til í að gera þetta svona einu sinni á ári. Það er svo gaman að fá allt fólkið sitt saman á einn stað og hafa svona skemmtilegt partý. Við náðum líka að fara í brúðkaupsferð með krakkana til DK í nóvember. Það var ofsalega gaman að hitta alla aftur og Brynjar gat farið í skólann aftur og fékk að vera í nokkra daga í tíma þar. María fór í heimsókn í leikskólann sinn og fannst mjög gaman þar nema hvað hún var búin að gleyma dönskunni soldið mikið svo hún átti smá erfitt en Brynjar skyldi flest allt og gat bjargað sér. Okkur Ella fannst ofsalega gaman að sjá alla staðina okkar aftur og nutum þess í botn að geta dúllað okkur með Mána. Okkur hefur liðið vel á Dalsflötunni árið 2009 og búin að koma okkur vel fyrir. Brynjar bjargar sér sjálfur á daginn þegar skólinn er búinn enda stutt að labba í skólann og á æfingar. Já árið 2009 var gott og ég er viss um að árið 2010 verði enn betra. Nú er bara að herða ólina og passa vel uppá sitt held að það sé mottóið fyrir nýja árið. Ég reyni að vera dugleg að setja inn myndir á Barnaland og kannski koma með eitt blogg fyrir mánuðinn já það er kannski raunhæft markmið fyrir bloggheiminn æj það er svo gott að vera með smá dagbók. Jæja læt þetta duga í bili ætla að njóta 1.janúar enn meira enda allt orðið svo fínt hjá okkur. Lamb í ofninum og góð máltíð framundan.
01. janúar 2010 klukkan 17:32
Brynja Kolbrún Pétursdóttir Engin athugasemd
Já það er bara ekki hægt að segja þetta of oft hve tíminn líður svakalega hratt og nú ætla ég að staldra aðeins við og horfa yfir tímalínuna og spá hvað við höfum verið að gera, hvað við erum að gera já og hvað við erum að fara að gera. Held að það sé nauðsynlegt að taka svona sýn á lífið reglulega þar sem tíminn líður ofsalega hratt. Kannski er það vegna þess hve við erum ofsalega upptekin og mikið um að vera, hitta fullt af fólki og reyna að sinna sjálfum okkur.
Við erum nú alltaf að gera eitthvað fjölskyldan á Skaganum og nú um síðustu helgi tók ég badmintonspaðann fram og keppti í Iceland Open í tvíliðaleik. Kom nú bara skemmtilega á óvart og náði að sigra nokkra leiki og komast í úrslit ásamt makkernum mínum Erlu. Já þetta var rosalega skemmtilegt en mér fannst úrslitaleikurinn alls ekki nógu góður, jú það er nú allt í lagi að tapa en leikurinn má þá líka vera góður, of oft dæmt á sendingar. En eftir allt þá fannst okkur þetta ofsalega gaman og aldrei að vita nema ég fari að mæta aðeins meira á æfingar. Ég fór líka aðeins á 3 æfingar fyrir mótið þar sem við vorum nú bara uppfyllingaefni en maður er nú í ágætu formi svona fyrir enda búin að vera hlaupa í soldin tíma. Krakkarnir voru í dekri hjá mömmu og Svavari en komu nú að horfa á mömmu sína líka oh það var svo gaman að sjá börnin sín á bekknum að hvetja mömmu sína. Elli er búin að vera að vinna mikið undanfarið svo það er mikið að gera hjá okkur. Brynjar alltaf jafn duglegur í skólanum og fótboltanum. Hann var að keppa um daginn í Keflavík og stóð sig rosalega vel. Við vorum ofsalega stolt af honum þar enda hefur hann tekið miklum framförum, hann skoraði líka eitt mark og átti skot í stöngina bara yndislegur. Hann á líka fullt fullt af vinum og honum gengur ofsalega vel í skólanum. María er líka mjög dugleg í leikskólanum, sundinu, söngnum og í íþróttaskólanum. Henni fer alltaf meira og meira fram í öllu sem hún gerir. Farin að skrifa, reyna lesa og kenna bróður sínum allt, hún er svo ótrúlega góð við litla bróður sinn og hjálpar honum með allt ásamt því að passa hann hvert sem þau fara. Leikskólinn hennar hélt tónleika í Tónberg með eldri borgurum og stóð hún sig rosalega vel. Við tókum allt upp á videó sem er nauðsynlegt þegar svona atburðir eiga sér stað. Oh það var svo fallegt að heyra þau syngja með eldri borgurum og okkar stelpa var æði! Máni Berg þroskast bara og stækkar. Farin að tala svo mikið og er algjör bílakall. Hann elskar að vera í íþróttahúsinu og ég held að hann eigi eftir að vera algjör íþróttaálfur já og bílakall. Hann leikur sér ekki með neitt annað en bíla jú nema kannski þegar hann er að leika með systur sinni þá grípur hann í dúkkurnar. Það gengur svona misvel að hætta með bleiju en við gerum það bara í rólegheitunum ekkert stress. Honum gengur vel í leikskólanum og það er aldrei vesen að mæta þangað á morgnana, hann bara hleypur inn og knúsar allar alveg yndislegur. Enda er hann með Loga frænda sínum á deild og þeir eru bestu vinir.
Já allt gengur sinn vanagang hjá okkur og erum við alltaf á sama stað. Ég er ofsalega ánægð í Orkuveitunni og Elli svona lala glaður í Norðurál. Hann er nú kominn með ábyrgðahlutverk sem er bara gott mál svo það hjálpar til. Hann er nú líka að vinna í Gullhömrum um helgar svo það er nóg að gera hjá honum.
Jæja þetta var nú bara smá yfirlit af okkur fjölskyldunni svona í nóvember ætla nú alltaf að reyna að vera duglegri svo þetta kemur nú allt saman. Við erum farin að huga að jólunum en ekki hvað þau eru eitt það skemmtilegasta á árinu. Við byrjuð að versla jólagjafir svo nú fer maður að huga að jólakortunum og einhverju fleiru skemmtilegur. Setti inn nýjan teljara svo við séum með á hreinu hversu langt sé til jóla. Alltaf nóg að gera og mikið að hlakka til.
10. nóvember 2009 klukkan 14:59
Brynja Kolbrún Pétursdóttir Engin athugasemd
Já tíminn er svo ótrúlega fljótur að líða að þetta er ekki eðlilegt finnst mér og ég ætla alltaf að fara blogga hér inn. Svo smá færsla núna bara rétt til að sýna að við erum á lífi og allt í kei-inu. Við bara búin að vera dugleg að vinna og reyna að hitta sem flesta sem er alltaf okkar markmið að vera dugleg að rækta vinskap og fjölskyldutengsl það er svo mikilvægt. En það er alveg ótrúlega margt gott fólk í kringum okkur. Nóg að gera framundan, Brynjar að fara keppa í fótbolta á morgun í Keflavík og auðvitað mætum við þangað kl.7:45!!! já soldið snemmt en látum það nú ekki stoppa okkur. María að fara syngja í stúdíó í dag ótrúleg söngkona þessi elska. Búin að vera soldin veikindi hjá okkur en samt bara lágmark sem betur fer. Erum dugleg að fara í badminton öll fjölskyldan á sunnudögum og það gefur okkur mjög mikið. Ásta vínkona og fjölskylda eru að flytja á klakann í dag!! vá hlakka mikið til að heyra í henni hvað þá að sjá þau!! Árshátíð Orkuveitunnar eftir eina viku og þá verður stuð hjá okkur hjónakornunum. Ætlum á hótel og hafa það nice í leiðinni.
En núna er föstudagur og ég bara bíð eftir að komast heim, love it;) Góða helgi allir sem lesa þetta bull í mér.......(spurning hvað það eru margir)
23. október 2009 klukkan 15:18
Brynja Kolbrún Pétursdóttir 3 athugasemdir
Í dag eru 5 ár síðan litla prinsessan okkar fæddist. Það eru fimm ár síðan ég lá inn á sjúkrahúsi Akraness með gullmola nr.2 í fanginu og við fjölskyldan urðum 4 í heimili. Þessi elska kom í heiminn með slím í lungunum og heyrðum við ekki öskur fyrr en Elín hristi hana hressilega. Sú lét sko heyra í sér eftir það og hefur ekki stoppað. Elsku María Rún okkar er gullmoli og alveg frábær karakter. Það var svo gaman að vekja hana í morgun og hún vaknaði með bros á vör. Frekar fyndið þar sem hún er oft mjög morgunfúl en ekki núna. Við sungum auðvitað fyrir hana og fékk hún pakka upp í rúm. Hún var alveg með það á hreinu að fá einn lítinn pakka áður en hún færi í leikskólann þessi elska svo hún fékk 3 litla pakka og síðan þegar hún er búin í leikskólanum í dag þá mun bíða hennar stór pakki á stofugólfinu og hún á eftir að verða svo glöð. Annars þarf mjög lítið til að gleðja elsku stelpuna okkar þar sem hún elskar allt, bæði gamalt dót, steina og skeljar. Meirað segja elskar hún kort sem hún fær, hún er alveg yndislegt. Það er hægt að skrifa heila ritgerð um hana Maríu Rún þó svo að hún sé aðeins orðin 5 ára. Hefur búið í Danmörku í 2 ár, tala dönsku, íslensku og plummað sig allt staðar. Á sko ekki erfitt með að aðlaga sig og finna sér leikfélaga.
Ég vil bara segja elsku elsku elsku stelpan okkar innilega til hamingju með afmælið þú er bestust;)
Læt fylgja með eina nýja flott mynd af henni.
Læt þetta duga í bili ætla sko að njóta helgarinnar og fjölskyldunnar allan tímann. Enda sláturgerð og afmæli á dagskrá bara skemmtilegt;)
25. september 2009 klukkan 10:54
Brynja Kolbrún Pétursdóttir 1 athugasemd
Já þetta er alveg ótrúlegt hvað tíminn líður púff og bara púff. Það er búið að vera svo mikið að gera hjá okkur að við vitum varla hvað við heitum lengur heheh en allt tekur þetta enda held ég eða ég trúi því allavega. Síðasta helgi fór í að vera heima ó já komin tími til og við náðum að baka nokkrar kökur fyrir afmælisveislu næstu helgi. En þá verður hún elsku María mín 5 ára ó já þið lásuð rétt 5 ára!! vorum við að tala um tímann já hann líður og við verðum að reyna að fá sem mest út úr honum.
Við ætlum að taka slátur næstu helgi líka svona það verður svona afmælis-sláturhelgi, svaka stuð. Allir að taka slátur sem er bara skemmtilegt. Svo það verður nóg að gera næstu helgi. María ætlar að halda uppá afmælið alla helgina og henni finnst það ekki leiðinlegt. Á laugardeginum á að vera fjölskylduafmæli og síðan á sunnudeginum stelpupartý oh það verður ofsalega skemmtilegt hjá henni.
Jæja best að fara gera eitthvað hérna alveg nóg að gera hjá minni. Er búin að setja fullt fullt af myndum inn á Barnaland svo endilega kíkja þar. Breytti aðeins síðunni líka ótrúlega öflug.
22. september 2009 klukkan 09:44
Brynja Kolbrún Pétursdóttir 1 athugasemd
Já þetta var nú bara snilld á Akureyri og vá hvað það er fallegur bær:) Var alveg búin að gleyma sjarmanum sem er þarna alltof langt síðan við höfum skellt okkur til Akureyris. Við fórum af stað um klukkan átta á föstudeginum og ferðin gekk bara vel norður. Elli og karlarnir voru búnir að setja í bílinn um sjö og þá var bara að taka sig til. Krakkarnir stóðu sig alveg eins og hetjur og við vorum komin norður um eittleytið. Þá var nú bara farið beint í íbúðina og beint uppí rúm. Vá hvað við vorum öll þreytt. Því miður þá gátu börnin ekki sofið lengi svo þau voru komin á fætum um átta og þá var nú bara ræs hjá okkur. Afmælisbarnið fékk nú að sofa aðeins lengur en við hin svo ég skrapp í bakarí og búð svo það væri nú afmælismorgunkaffi fyrir kallinn. Æj varð að koma honum aðeins á óvart ja eða svona eins og hægt var. Var nú búin að laumupúkast með afmælisgjöfina hans svo það kom pínu á óvart æj ég elska það að geta gert eitthvað pínu fyrir makann sinn bara yndislegt. Við byrjuðum svo að bera uppá fjórðu hæð í nýju íbúðina þeirra Gísla og Hrafnhildar um ellefuleytið og vorum rosalega dugleg. Tók ekki nema 1 og hálfan til 2 tíma að bera dótið upp!! svo þetta var fínasta æfing. Þá varð Máni orðin svo þreyttur að ég bara varð að fara með hann heim að sofa. Ég notaði nú tækifærið og lagði mig líka. Brynjar slakaði bara á en allir hinir héldu áfram uppí íbúð svo þegar við vorum búin að sofa þá var allt orðið svo fínt í íbúðinni hjá þeim. Við fórum þá í smá bíltúr um Akureyri og sem betur fer var mamma með því hún gat sýnt okkur það svona helsta. Fengum okkur Brynjuís og kíktum í jólahúsið. Vá hvað það var gaman. Krökkunum fannst það alveg æðislegt og jólabarninu honum Brynjari fannst þetta flottasta hús sem hann hafði komið í hehe. Voru nú soldið hrædd við grýlu sem gægðist í kjallaranum. Síðan var nú bara sturta og svo pizza hjá Hrafnhildi í boði Gísla og hennar. Því miður var Gísli á sjónum en það verður gaman að koma í heimsókn til þeirra beggja. Nú hefur maður ástæðu fyrir að fara norður og um að gera að vera dugleg við það í vetur. Við fórum svo á sunnudeginum í bíltúr upp að skíðasvæðinu og það var æðislegt að horfa yfir allann bæinn og veðrið skemmdi ekki fyrir það var svo gott. Síðan uppúr hádegi þá fórum við að huga að heimferð. Ferðin heim gekk líka vel og vorum við vel þreytt þegar heim kom. Enda var farið snemma í háttinn. Já mjög velheppnuð ferð norður á Akureyri.
Svo núna höldum við bara áfram með smjörið á okkar bæ. Brynjar duglegur í skólanum, María dugleg í leikskólanum, einhverjar skólaheimsóknir hjá henni og skemmtilegheit. Máni bara flottur farinn að pissa í koppinn og kúka svo það er bara hamingja hjá okkur. Styttist óðum í afmæli prinsessunar svo við förum að baka fyrir það bráðlega. Já og sláturtíð að koma og auðvitað elsku amma mín verður þú með í slátri ekki spurning!!!
Ég fékk svo eina litla frænku í síðustu viku og fæddist hún á Skaganum. Því miður komst ég ekki að skoða hana en ég mun bruna vestur á Grunarfjörð eins fljótt og ég get.
Þessi vika er ofsalega upptekin er á fullu að vinna og það klárast á fimmtudaginn jibbí jei. Svo ég verð ekki heima alla vikuna svo ég hlakka mikið til föstudagsins þá mun ég bara flatmaga fyrir framan sjónvarpið með fjölskyldunni yndislegt. Elli er eitthvað heima í vikunni sem er bara æðislegt enda er hann búinn að vera vinna svo mikið undanfarið svo hann á nú inni nokkra daga frí.
well myndir allaf á leiðinni og ég hugsa það komi um helgina hef ekki tíma í vikunni sorry.....
08. september 2009 klukkan 13:27
Brynja Kolbrún Pétursdóttir 1 athugasemd
Já það er mikið að gera þessa dagana og þeir bara fljúga áfram. September kominn og þá er nú ekki margir mánuðir til jóla enda nóg að gera þangað til. Ég er á fullu að klára aukavinnuna en svo tek ég smá pásu í því fram yfir áramót og skoða mín mál varðandi hana. Æj það verður nú gott að sjá bara um vinnuna og heimilið enda þurfum við að fara taka allt í gegn hjá okkur í húsinu. Vá það er rúmt ár síðan við fluttum heim og eigum enn eftir að fara yfir kassana æj það er svo mikið dót sem fylgir manni. Þetta kemur allt saman.
Nóg að gera framundan. Erum að fara flytja Gísla og Hrafnhildi norður á Akureyri um helgina og stefnan er að setja allt í bíl á morgun eftir vinnu og halda norður um kvöldið eða laugardagsmorgun. Það verður nú bara stuð hjá okkur í þessu og okkur hlakkar mikið til að fara til Akureyris vá það er svo langt síðan ég kom þangað síðast. Gísli bró er á sjónum og verður ekki með okkur svo við verðum nú að standa okkur fyrir hann en ekki hvað!
Elli minn á svo afmæli á laugardaginn og við höldum bara uppá það fyrir norðan. Svoldið skítið því við höfum held ég alltaf verið heima á afmælinu hans og verið með kaffi og kökur. Það verður bara í boði í vikunni eftir ef einhver vill kíkja á okkur. María okkar á líka afmæli í þessum mánuði og verðu hún 5 ára það er nú ekki seinna vænna að fara undirbúa það afmæli því hún hefur sko skoðun á því hvernig hún vill hafa þetta. Ég er nú hugsa um sláturgerð sömu helgi og reyna að blanda þessu saman svo þetta kemur nú allt í ljós.
Jæja langur dagur í dag vinna hér í OR, fara svo í Uppgjör, síðan á stjórnarfund hjá BSÍ, og svo aftur í Uppgjör að klára og svo loks HEIM!! Vá hvað ég elska að koma heim eftir svona langa daga.
Meira næst. p.s. engar myndir komnar enn en þær koma ekki spurning!!!
03. september 2009 klukkan 09:35
Brynja Kolbrún Pétursdóttir 2 athugasemdir
Þetta er nú meira hvað ég er lélegur bloggari. Kem oft inn á síðuna og hugsa blogg en fæ mig ekki til að skrifa æj er eitthvað svo alltof busy þessa dagana, vikurnar, mánuðina. Er nú ekki heldur viss um hvort einhverjir séu að lesa hjá mér en allavega þá hef ég smá dagbók til að geta skoðað þegar ég er orðin gömul. Mér finnst allavega fátt skemmtilegra en að kíkja á gamlar færslur sérstaklega frá dvölinni okkar í DK guð hvað ég sakna þess mikið. Ég reyni nú ekki að hugsa mikið um það en það kemur stundum upp í huga minn hvað ég væri til að vera í DK. Sakna mikið alls bara og mér finnst verst að vera ekki búin að fara í heimsókn eftir að við fluttum heim. Við verðum að fara út bara svona til að sjá allt aftur og hitta alla aftur því að lífið okkar þar var æðislegt. Ég fer svo oft inn á bókunarvefinn hjá Iceland Express og Icelandair og hugsa já best að panta núna en svo bara guð nei ég get ekki bókað....manni finnst bara eins og það sé verið að svindla á sér og vil ekki taka þátt í þessari vitleysi. Svo tala ég ekki um að taka á leigu bíl það er bara rán hreint út sagt. Svo ég hörfa alltaf frá og hugsa jæja best að geyma þessa ferð okkar uuhhh eins og það er sárt. En nú stefnum við á að fara út í vor og reyna að vera í langan tíma 2-3 vikur það væri snilld svo það kemur allt í ljós. Trúi því að ástandið batni hérna hjá okkur núna þegar búið er að samþykkja Icesave svo ég er viss um að gengið lagist aðeins og það fer að verða bærilegt að fara til elsku DK-Árósa.
En kannski ég skrifi aðeins um okkur fjölskylduna en við erum bara ofsalega dugleg öll sömul en ekki hvað! Við reynum að standa okkur á öllum vígstöðum. Byrjum á yngsta barninum oh honum Mána okkar. Hann er orðinn leikskólastrákur og er alveg ofsalega duglegur. Finnst alveg æðislegt að vera í leikskólanum og leika við krakkana. Logi frændi hans er með honum á deild og þeir prakkarast saman. Ég er rosalega glöð með leikskólakennarana hjá honum og honum líður vel þar. Núna erum við að fara reyna að hætta með bleiju og hann segir bara "hætta bleiju" hihi en fattar ekki að þá verður hann að pissa í koppinn!! Hann sest nú alveg á koppinn og situr smástund en svo segir hann "búinn" og ekkert kemur í koppinn hihi. En hann er búin að vera bleijulaus um helgina og pissar í buxurnar en það er svo óþægilegt svo þetta fer að koma hjá honum. Hann er farinn að tala og babbla sem er æði og við sjáum framfarir hjá honum á hverjum degi. Hefur sjálfstæðar skoðanir og vill helst bara leika með bílana. Elskar Bubba Byggir og hans bíla svo það er gott að Brynjar átti marga. Bara duglegur og flottur strákur hann Máni Berg. María Rún hefur bara stækkað í sumar OMG ég veit ekki hvar þetta endar. Litla stelpan orðin svo stór. Komin á stóru deildina og farin að undirbúa skólagöngu eftir ár vá hvað það verður gaman. Í dag er hún að fara í leikfimi með krökkunum á deildinni og það verður örugglega stuð. Hún er búin að vera í fótbolta í allt sumar en við höfum verið löt við að mæta eða bara gleymt því sem er ekki nógu gott. En hún fór að sundnámskeið í sumar og fannst rosalega gaman. Svo við ætlum að leyfa henni að æfa sund í vetur. Henni finnst líka fimleikar skemmtilegir svo hún verður í þeim líka bara stuð. Svo það verður nóg að gera hjá henni í vetur að sprikkla. Það styttist óðum í afmælið hennar en hún verður 5 ára 25.sept púff 5 ÁRA það er frekar flott að vera heil hendi. Brynjar Már er byrjaður í skólanum og kominn í 3ja bekk!!! já þetta er rétt 3ja bekk og verður 8 ára í desember. Já ekki fyrr en þá en hann spurði mig í sumar hvort hann mætti eiga afmæli í ágúst því það er svo langt þangað til í desember. en ég þekki þetta svo sem þar sem ég á afmæli svo seint líka. Hann er náttúrulega bara á fullu í fótboltanum og finnst alltaf jafn gaman að fara á æfingar og spila. Núna er hann kominn í 6. flokk yngri svo þetta mjakast hjá honum. Hann á orðið þennan fína vinahóp og vill helst bara vera að leika við vinina alla daga og langt fram á kvöld! og ég er bara sátt við það og finnst gaman að fylgjast með og sjá hve glaður hann er. Hann vill alls ekki flytja af Skaganum og getur ekki hugsað sér að fara æfa með öðru félagi en ÍA svo mikill Skagamaður er hann orðinn sem gleður hjartað mitt! Hann er nú farinn að tala um að fara í skátana svo ég ætla nú að leyfa honum að prufa, held að það geti verið ofsalega gaman fyrir hann. Síðan vill hann líka fara spila badminton sem ég skil mjög vel enda mamma hans alltaf að tala um það heheh svo við förum að skella okkur á badmintonæfingu ekki veitir af.
Þau eru bara dugleg elsku börnin og við erum búin að vera dugleg að fara eitthvað í sumar og gera eitthvað. Vorum í bústað við Úlfljótsvatn í viku, fórum á ættarmót í Grundarfjörð, ættarmót í Reykholti og síðan fullt af bíltúrum. Við erum eiginlega farin að þrá það að vera bara heima eina helgi og fara ekki neitt en það hlýtur að koma að því einhvern daginn. Að vísu fer september að verða fullbókaður svo við sjáum bara til.
Af okkur hjónakorninu að frétta er bara að við erum endalaust ástfangin og finnst við voðalega fyndin og skemmtileg. Elli er enn í Norðurál og lætur sig hafa þessa vaktavinnu enda ekki annað hægt. Hann er nú alltaf að hugsa sín mál og það er aldrei að vita hvað hann tekur sér fyrir hendur. Ég er í Orkuveitunni en ekki hvað og er alveg að fíla það. Það venst að keyra á milli á hverjum degi og það sem bjargar er að það tekur yndislegt fólk á móti mér í vinnunni sem er æði!!
Well best að fara vinna hérna nokkur verkefni bíða. Ég ætla að reyna að vera dugleg að blogga og setja inn myndir en ég skulda allar sumarmyndirnar þær koma inn í kvöld ásamt brúðarmyndum en ekki hvað!!!
Hilsen.
31. ágúst 2009 klukkan 09:26
Brynja Kolbrún Pétursdóttir 3 athugasemdir
Elskulegi Máni Berg okkar varð 2ja ára í gær já ég segi ekki ósatt en hann er orðin 2ja ára elsku strákurinn okkar. Alltaf segir maður hvað tíminn líður hratt og börnin vaxa ótrúlega hratt. Hann hefur þroskast svo bara í sumarfríinu og orðaforðinn eykst bara segir alltaf meira og meira þessi elska. Við náttúrulega erum bara ótrúlega stolt af litla stráknum okkar og eldri systkinin líka. Við vöknuðum öll saman í gærmorgun og Máni fékk pakka uppí rúm ég held bara að þetta sé í fyrsta skiptið sem hann svona vissi hvað átti að gera við pakkana já rífa þá upp!! yndislegt og svo sagði hann bara DÓT DÓT hi hi svo mikil elska. Dagurinn var bara rosa fínn og við fengum til okkar yndislegt fólk. Auðvitað voru kökur í boði og ljúfeng súpa. Því miður voru margir í ferðalagi svo ekki komust allir en svona er þetta að eiga afmæli að sumri. En litli strákurinn okkar var rosalega glaður með daginn og sofnaði snemma í gærkvöldi alveg búinn á því.
Margt að gera framundan litli stóri strákurinn okkar að fara byrja í leikskóla jibbí jei segjum við bara. Hann byrjar í aðlögun á miðvikudaginn og ég ætla að vera með honum oh ég hlakka svo til og nú förum við að sjá enn meiri framfarir hjá honum.
María er í leikskólanum ofsalega dugleg og hlakkar mikið til að fá bróður sinn þangað líka. Það verður fínt að hafa þau saman í leikskólanum. síðan á Brynjar tvær vikur eftir í sumarfríi og þá fer skólinn að byrja hjá honum. Vá kominn í 3ja bekk!!!!
Meira næst
10. ágúst 2009 klukkan 11:01
Brynja Kolbrún Pétursdóttir Engin athugasemd
Já áfram með smjörið má ekki láta líða of langt á milli færslna. Hvar vorum við hmmm......................
Jú skála fyrir okkur og knúsa alla. Það var alveg yndislegt að sjá allt fólkið sitt saman komið og það var svo góð mæting í bryllupið. síðan settumst við niður við okkar borð sem hét Brobjerg Parkvej, já hafa það með líka. Við sátum saman hjónin og krakkarnir nema María og Máni máttu ekkert vera að því að sitja miklu skemmtilegra bara að valsa um og tala við fólkið. Mamma og Svavar byrjuðu á því að bjóða fólkið velkomið og hélt mamma þessa fínu ræðu. Vigga og Beta veislustjórar tóku svo við og stjórnuðu öllu um kvöldið. Það var risastórt tjald uppi þar sem myndir af okkur, vinum og fleirum gekk allt kvöldið. Oh hvað það var gaman að sjá allar gömlu myndirnar. Síðan var maturinn tilbúinn og vá hvað hann var góður. Það var byrjað á því að framreiða forréttinn, sem var hörpudiskur og risa rækja með salati og hvítlaukssósu, nammi nammi namm. Síðan var í aðalrétt kalkúnabringa, sæt kartöflumúss og meðlæti. Alveg rosalega gott. Eftir þessa törn í matnum var gerð smá hvíld enda varð maður að fá að melta allan þennan góða mat. Vigga og Beta sá um að skemmta okkur, sögðu sögur og héldu ræður og fengum fleira fólk að segja eitthvað fallegt til okkar. Elskulegu bræður mínir voru fengnir til að standa upp og segja eitthvað fallegt til okkar og stóð Gísli svo frábærlega vel. Hann byrjaði og endaði á því að segja "lifið í lukku en ekki í krukku" sem var svo yndislegt síðan komu þeir hver á eftir öðrum Kristján, Ingólfur, Teitur og Hafþór. Þetta var alveg ómetanlegt móment. Óli bróðir Ella hélt smá ræðu sem var æðislegt. Síðan voru settir miðar á öll borð og allir áttu að skrifa ráð til okkar alveg frábært. Við fórum síðan í Barbie/Bratz leik sem var mjög skemmtilegt hihi. Erum nú frekar sammála enda fer ekkert á milli mála hver gerir hvað á okkar heimili erum nú mjög samstíga í sem flestu og vegum hvort annað upp. Erum dugleg að vinna bæði tvö svo heimilið lendir á öðru hvoru okkar eftir því hve mikið er að gera hjá hinum. Svona er þetta bara þó okkur finnst nú skemmtilegast að gera allt saman!! Elli sótti síðan sokkabandi og henti því til allra einhleypa karlmanna og var það Brynjar sem greip það en hann gaf Jón Andra bandið hihi góður. Ég henti síðan brúðarvendinum og var Írena klár í slaginn að ná honum en Sigrún tók nett skref til hliðar og greip hann, alveg frábært móment líka. Írena hélt þessa flottu ræðu og það var svo gaman að hlusta á hana hún kann þetta stelpan og vá hvað mér þótti vænt um allt sem hún hafði að segja. Brúðartertan var síðan borin fram og var það hún elskulega Þórunn sem bakaði hana og amma gerði kransakökubita sem reyndust vera að dönskum ættum. Þetta var allt saman svo flott og gott. Við skárum tertuna saman og gáfum hvor öðru bita lovely. Eftir kökuna dönsuðum við brúðarvals eða eitthvað svoleiðis og það var nú skemmtilegt, öll hjón komu síðan og dönsuðu með okkur. Síðan sýndu vínkonur mínar gæsunina og stóð Írena sig með prýði þar. Myndbandið var frábært og ég var síðan látin syngja Sódóma live. Auðvitað gerði ég það enda vön að troða upp hihi. Eftir öll þessi skemmtilegheit fór fólk að týnast heim og ballið fór að byrja enda tikkaði klukkan. Harabræður héldu uppi stuðinu og ég held bara að allir hafi skemmt sér svakalega vel. Ég allavega er enn brosandi og alveg ofsalega ánægð með frábærasta dag ever!!!! Krakkarnir fengu að vera eins lengi í veislunni og þau gátu en Bryndís frænka fór með Maríu og Mána heim þegar þau voru orðin frekar þreytt, Brynjar fékk að vera aðeins lengur en síðan fór amma og afi með hann heim. Thelma vínkona Jensínu og kærasti hennar passaði krakkana þangað til við komum heim sem var alveg frábært.
Daginn eftir sváfum við aðeins út en börnin vöknuðu snemma, meirað segja María vaknaði fyrst á undan Mána og vildi endilega fá okkur framúr. Púff hvað það var erfitt en hún vildi sko fara taka upp þessa pakka sem voru heima. Við fengum þessar fallegur gjafir og góðan ferðasjóð sem við erum svo þakklát yfir alveg bara í skýjunum og þökkum kærlega fyrir okkur. Það er bara aldrei hægt að þakka of mikið fyrir sig held ég. Síðan drifum við okkur aftur í salinn og taka til. Mamma og Svavar voru mætt og langt komin með allt saman en við bara drifu þetta áfram og fórum með afganga heim til okkar. Vá hvað við áttum mikið heima púff vorum bara í nokkra klukkutíma að ganga frá afgöngum, skrauti og fleiru. Amma, afi, mamma og Svavar komu í kaffi og kökur og buðum við þeim líka í mat um kvöldið áttum svo mikinn mat. Gísli og Hrafnhildur komu líka í mat. Svo gaman að hafa fólkið sitt hjá sér held bara að það sé skemmtilegast!!!!
Þetta brúðkaup var draumurinn!!! það er ekki hægt að segja neitt annað, við gerum ekki annað en að tala um það, skoða myndir og vídeó til að upplifa daginn aftur alveg súper. Ljósmyndarinn stóð sig svo vel og tók fullt fullt af myndum sem hægt er að skoða endalaust. Kokkarnir Hjölli og Svavar stóðu sig líka eins og hetjur enda frábær matur var framreiddur.
Jæja ætla að stoppa núna kem með meira á morgun enda er svo mikið sem við erum alltaf að gera höfum ekki stoppað við eftir bryllupið......
08. júlí 2009 klukkan 08:44
Brynja Kolbrún Pétursdóttir 1 athugasemd
Skil ekki þessa bloggsíðu lengur. Færslurnar koma svo seint inn hhmmm. Kannski líka vegna þess að ég er svo löt við að skrifa blogg. En hugsið ykkur hvað tíminn er ótrúlega fljótur að líða held það standi 21 dagur síðan við urðum opinberlega hjón, vá 21 dagur síðan við giftum okkur og mér finnst eins og það hafi verið í gær. Ég ætla aðeins að skrifa smá úrdrátt frá deginum sjálfum enda mjög gott að hafa það hérna í dagbók svo ég geti alltaf kíkt hingað og séð hvernig þetta var. Maður verður að halda þessu við þar sem það er svo æðislegt að kíkja aftur í tímann. Stundum skoða ég hvað við vorum að gera fyrir ákkúrat ári síðan í DK oh já sakna þess alltaf en okkur líður vel.
Brúðkaupsdagurinn 16.06.09.
Yndislegur dagur í alla staði. Við byrjuðum hann nú rólega. Vorum búin að skreyta salinn á sunnudeginum sem var rosalega fínt. Á mánudeginum héldum við áfram að undirbúa enda við í fríi loksins já það var nú ekki tekið of mikið frí fyrir brúðkaupið en allt gekk þetta upp. Þórunn kom og gerði sósu fyrir brúðarkökuna og við kíktum enn og aftur á kjólinn þar sem ég var nú ekki alveg sátt við hann. Amma var líka með okkur og var sprettuhnífurinn tekinn upp og aðeins saumað á hliðunum svo þá varð kjóllinn rosa fínn.
Já þriðjudagurinn var tekinn rólega að mig minnir en samt ekki. Fórum í Bónus og kláruðum að versla það sem vantaði, fórum með það í salinn allt að smella saman. Laufey kom með blómin og bjó til brúðarvöndin, barmblómin og skreytti allan salinn með blómum. Já ekki má gleyma brúðarbílunum hans afa bara glæsilegt hjá Laufey sem á skilið ferfalt húrra fyrir allt saman. Stressið fór að segja til sína svona um eitt leytið þar sem ég átti nú eftir að gera slatta já og Elli líka. María fór í leikskólann og Máni fór til dagmömmu enda fínt að láta þau halda sinni rútínu. Ég varð svo bara að komast aðeins út úr húsi og hlaupa nettan hring svona til að hreinsa allt bara, dreif mig svo í baðið og af stað til Bryndísar elsku frænku minnar þar sem hún ætlaði að greiða mér fyrir daginn. Svo klukkan tvö hálf þrjú þá var ég bara komin í dekur og undirbúning. Elsku Elli minn var á fullu að baða börnin og reyna að hafa fínt heima. Bryndís gerði þessa flottu greiðslu og eftir hana fórum við heim til mömmu þar sem Kolla frænka kom og farðaði mig. Því næst var að fara í kjóllin og klæða Maríu og Mána líka. Svo Elli kom með krakkana nema Brynjar var hjá honum. Svona um klukkan fimm kom smá stress tími hihi en ekki hvað jújú öll að klæða okkur og hafa gaman. Máni ætlaði nú ekki að fara í fínu fötin en þegar hann var nú komin í þá varð það ekkert mál svo flottur. María varð sko alvöru prinsessa í öllu bleiku með krullur og bleikar rósir í hárinu. Allt gekk bara vel og um 15 til 20 mín í sex kom pabbi og síðan afi og biðum við eftir að klukkan varð 18:00 maður verður nú að láta aðeins bíða eftir sér. Gísli og Kristján tóku krakkana og keyrðu þau í kirkjuna þar sem María beið eftir mömmu sinni fyrir utan þar sem hún labbaði með okkur inn.
Síðan fórum við af stað og ég fór nú bara að hlakka til, allt stress fór en ég held nú að pabbi hafi verið soldið stressaður. Mamma og Eygló voru búnar að taka á móti fólkinu og biðu fyrir framan þegar við komum inn oh en gaman að heyra í kirkjubjöllunum. Síðan varð allt klárt þær fóru inn með Mána og við biðum aðeins. Dyrnar opnuðust síðan og orgelið fór að hljóma vei við vorum að labba inn. Vá hvað það var gaman að sjá allt fólkið sitt standa meðfram og uppi við altarið stór maðurinn minn og frumburðurinn minn alveg yndislegt. Held að það sé ekki til betra móment. Ég man bara að ég brosti hringinn og reyndi að horfa til sem flesta. Passaði líka aðeins uppá hana Maríu mína sem var soldið feimin með alla þessa athygli. Það gekk soldið erfiðlega að fara upp tröppurnar því ég var alltaf að stíga á kjólinn en reyndi nú bara að halda kúlinu ekki málið. Síðan settumst við pabbi andspænis Ella mínum og Sigga með prestin á milli okkar. Krakkarnir sátu í tröppunum sem var svo sætt. Máni var bara með duddu og teddýin sinn. Biggi tók tvö lög, Brúðarlag og Værð og það var svo flott hjá honum. Svo gott að hafa þetta soldið létt og skemmtilegt. Síðan talaði presturinn til okkar og hún var alveg frábær hún Irma Sjöfn. Elli sagði lágt JÁ en ég ákvað að bíða aðeins og hlusta á þögnina sem myndaðist þegar ég var spurð síðan ákvað ég að segja mjög hátt JÁ svo allir myndu heyra það að ég vil sko giftast honum Ella mínum. Fólkið hló smá enda þekkir það okkur alveg. Brynjar og María voru við hlið okkar þegar við stóðum við altarið og voru með hringana. María rétti mér hringin hans Ella og Brynjar rétti Ella hringin minn og þau stóðu sig alveg frábærlega. Við fengum svo að kyssa hvort annað og það var nú gott að kyssa sem vígð hjón bara yndislegt. Síðan krupum við og Irma blessaði okkur, síðan settumst við saman ég og Elli og pabbi og Siggi. Píanóið fór að hljóma og söngurinn byrjaði.... Biggi ætlaði að taka eitt sálarlag og mér fannst hann nú bara ná Stebba mjög vel. Elli pikkaði í mig og spurði hvernig mér fannst söngurinn og ég bara ótrúlega góður en svo steig fram goðið Stefán Hilmarsson..... alveg OMG. Þá var hann bara mættur að svæðið þessi elska að syngja fyrir okkur "þú fullkomnar mig". Þetta var alveg ólýsanleg tilfinning og svo frábært. En Svavar og Gísli voru búnir að undirbúa þetta og þakka ég þeim alveg 100 sinnum fyrir það. Bara toppurinn. Eftir lagið hljómaði orgelið og við stóðum upp, kysstumst og af stað. Vá hvað þetta var skemmtilegt í kirkjunni og ég bara elska brúðkaup. Við röltum mjög rólega út úr kirkjunni með krakkana með okkur. Jón ljósmyndari myndaði okkur bak og fyrir og fórum við bara beint út í bíl til afa. Kristján tók krakkana og brunuðum við uppí Skógrækt í myndatöku. Það fór að koma nokkrir dropar á meðan myndatökunni stóð en það var allt í lagi. Krakkarnir voru bara stutt og fóru þau á undan okkur. En myndataka var nú bara í 20 mín svo við vildum bara drífa okkur í veisluna þar sem allt fólkið okkar beið okkar. Ég hringdi í Viggu og lét hana vita að við værum á leiðinni. Þegar við komum að Oddfelowsalnum þá beið fólkið eftir okkur niðri. Við hlupum inn þar sem rigningin var farin að magnast og rosalega gaman að hitta alla, það voru sápukúlur og klöpp. Við knúsuðum flesta og fórum svo í lyftuna upp á 3ju hæð. Þar var enn meira fólk og beið Laufey þar með kampavín, jarðaber og konfekt fyrir okkur alveg frábært!! Við skáluðum öll saman og síðan komu allir og óskuðu okkur til hamingju sem var yndislegt að fá að knúsa alla alveg nauðsynlegt.
Ælta að gera smá pásu kem með færslu frá veislunni.....
07. júlí 2009 klukkan 08:00
Brynja Kolbrún Pétursdóttir Engin athugasemd
Já er það ekki áfram með smjörið. Skil ekki af hverju færslurnar skila sér svona seint inn hérna en ég held bara áfram að skrifa. En eins og ég sagði í gær þá kom elskulegi kjóllinn minn og ótrúlegt en satt þá bara passar hann vá ég vann í lottó greinilega. Verð að kaupa mér einhver undirföt svona til að lyfta öllu upp og það er nú ekki málið. Svo öll föt fara að verða tilbúið jibbí jei. Gott að tékka út atriði.
Þórunn kom í gær með kökurnar nammi namm svo þær eru komnar í frysti. Heyrði líka að allur matur væri kominn á Skagann svo það er líka gott mál. Skreytingarmál eru öll í góðum farveg og ég held bara að svona flest allt sé að læsast inni.
Í dag er svo stóri makeover dagurinn en hann byrjar eftir klukkutíma og verður svona fram eftir degi ásamt því sem ég fer í vinnuna hihi. Vinn á svo skemmtilegum stað þar sem allir taka þátt í þessu með mér enda er ég nú ekki sú lokaðasta alls ekki.
Jæja áfram með smjörið...
11. júní 2009 klukkan 10:03
Brynja Kolbrún Pétursdóttir Engin athugasemd
Jæja nú erum við flutt aftur á klakann bara yndislegt. Allir voðalega glaðir og ánægðir. Erum búin að njóta þess að búa í Danaveldi og öll höfum við þroskast mikið og kunnum að meta margt. Auðvitað söknum við DK og þá sérstaklega Árósum, Ega og þetta tímabil mun alltaf vera í hjörtum okkar.
Núna tekur bara nýtt við og munum við reyna að gera allt sem okkur langar til og bara halda áfram að njóta þess að vera við.
Við búum uppá Akranesi og líkar okkur það fínt bara. Allt er svona að gerast og erum við bara að koma okkur betur og betur fyrir.
Allir þeir sem vilja hafa samband við okkur þá er síminn hjá okkur,
Elli: 868-6509
Brynja: 617-6318
Heima: 431-5112
Eða bara kíkja til okkar við Víðigrund 6. Hlökkum til að sjá þig!!